|
|
25.08.2011 18:27:25 / Gustavo
13 heimsóknir? Í dag?! Talandi um að lemja dauðan hest. Who the fuck are you people?
Allavega.
Hefur einhver annar tekið eftir því að eftir því sem maður eldist, þá fækkar afmælisboðum og jarðarförum fjölgar?
-Gústavo
»
04.02.2009 17:48:14 / Gustavo
Ég var í strætó hér fyrir nokkru þegar ég sá virkilega merkilegan atburð. Það var manneskja að tala við sjálfa sig á táknmáli. Nema hún hafi verið að fá flog, en ég er ekki svo viss. Mér finnst fullkomlega í lagi að tala við sjálfan sig svo lengi sem það fer ekkert á milli mála. Maður lærir best á því að útskýra fyrir fólki og stundum þarf ég bara að útskýra heilan helling fyrir mér. Plús, það er mjög leysandi að vera kátur við sjálfan sig. Svona eins og að prumpa. Ahem.
En já, að tala við sjálfan sig. Á táknmáli. Ég held að maður gæti slasast alvarlega við það. Tognað jafnvel. Meitt aðra, skemmt hluti, og annað. Það er samt fyndið að fylgjast með fólki horfa á fólk sem gerir eitthvað svona óvenjulegt. Eins og þetta séu dýr að dansa nakin. Strætó er klárlega personal space þar sem hefðir skal ekki brjóta. Svona eins og að vera á almenningsklósetti þar sem er fullt af básum og alveg hljótt og rymja og stynja eins og pynntaður uxi. Það er mega gaman.
Mjög margir skilja ekki þetta athæfi, að tröllast. Sjáið til, að tröllast byrjaði á svona forum netsíðum, þarsem fólk kemur inná og segir eitthvað sem augljóst er að einhverjir taka nærri sér. Það sem gerist er að fólkið hefur heimsmeistarann í skítkasti og þráðurinn endar ein illa lyktandi brunarúst því einu trölli tókst að reita svo marga til reiði. Það krefst meiri hæfni að tröllast í lifanda lífi. Þá hefuru ekki nafnleysuna eða hörkuna sem felst í svörtu á hvítu. Eða hverslags sem fontið er á litin og svo síðan. Einnig gæti maður verið barin eftir tröllun í persónu, sem er gífurlega leiðinlegt fyrir alla nema masókista. Þeir eru fjör.
Semsagt. Tröllum fíflin og skemmum hefðirnar. Kúkum með látum!
-Gústavo
P.S : Vegna þess að ég er rebell og verðandi tröll, þá ætla ég ekki að halda í hefðir hér eftir. Pisspiss.
»
26.01.2009 15:14:47 / Gustavo
Ég skil ekki alveg hversvegna það er ennþá svona mikið af heimsóknum hérna. I'm flattered.
En þar sem það stefnir í að ég fari að skrifa mikið mikið meira en ég hef gert þá ætla ég að reyna að æfa mig með því að blogga amk einusinni í viku. Gott til að koma blóðinu aftur í þann part, og þá fæ ég kannski fleiri hugmyndir að sögum.
Þartil næst - Gústavo
»
24.09.2008 21:07:56 / Gustavo
Jæja, ég var klukkaður af Maríu. Lets begin
1. Fjögur störf sem ég hef unnið:
- Aðstoðarmaður umsjónarmanns ÍR-vallarins. - Handlangari fyrir umsjónarmann heilsugæslustöðvanna - Fullt, fullt af sumrum hjá reykjavíkurborg - Fulltrúi svæðisstjóra í Böggladeild
2. Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:
- Starship Troopers - Batman Begins - Moulin Rouge - Beerfest
3. Fjórir staðir sem ég hef átt heima á:
Tæknilega séð hef ég bara búið á tvem stöðum:
- Blikahólar 6, Reykjavík - Vesturhólar 13, Reykjavík Hinsvegar vorum við mjöööög oft á tvem öðrum stöðum, þannig að ég get alveg eins sett þá hingað: - Geirshlíð, Borgarfirði - Skagaströnd
4. Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi helst á: - Supernatural - Farscape - Venture Brothers - Family Guy/American Dad
5. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum: - Danmörk - Þýskaland - Skotland - Portúgal
6. Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (reglulega): - icanhascheeseburger.com - xkcd.com - kotaku.com - facebook.com
7. Fjórir réttir sem mér finnst góðir: - Lasagne - Allskonar pizzur - Custom hamborgarar (heimagerðir með því sem manni dettur í hug) - Allskonar kássur, helst með fullt af góðu kryddi og góðri sósu - Veit að það eru bara fjórir, en GRATÍN! Ég gæti borðað gratín með öllu, af öllu og alltaf
8. Fjórar bækur sem ég les amk. árlega:
Sammála Maríu, ekki árlega en ég fýla bækur eftir
- Dan Abnett - Terry Pratchet - R.A. Salvatore - Alan Moore
There
we go. Ég klukka Ingu því ég held að allir aðrir hafi verið klukkaðir
nú þegar. Mér finnst samt vanta eitthvað um tónlist eða eitthvað. Bleh,
veitiggi. Gaman yay! *dans*
-Gústavo
»
21.09.2008 23:38:23 / Gustavo
Ég óska hérmeð eftir einhverjum til að koma með mér út að sjó einhverntíma á næstunni og öskra með mér á hann, landið, loftið og svo getum við öskrað á okkur sjálf til að hafa öskrað á allt. Það er samt mun betra að vera reiður en leiður, jafnvel þó að það sé bara smá bil þarna á milli.
Ég meina, r er eins og hokið l. Sem meikar ekkert sens afþví maður er miklu háreistari þegar maður er reiður en leiður. Þannig að þetta er bara helvítis rugl. Ég held ég öskri á það líka.
Ég er alveg gríðarlega reiður, pirraður og reiður út í allt.
-Gústavo
»
25.08.2008 22:29:33 / Gustavo
*tap*tap*tap* Frekar silly að lemja á blogg. Það heyrist ekkert. Döh. Jæjah. Í ljósi þess að sjálfskipaða sumarfríið mitt er búið er kannski rétt að blogga? Svarið er nei. Það er enginn fjandans skylda að blogga, upp á síðkastið hef ég bara fundið fyrir þörf til að skrifa og þar sem ég hafði fullt annað að gera í kvöld, afhverju ekki þá? Mér finnst isjgoaijgablehblehblehbleh. Ég nenni ekki að vera málefnalegur. Ég á blogg og mig langar að skrifa. Ég veit að flestir eru hættir að skoða þetta en þá er bara fámennt en góðmennt. Ég hef mikið spáð, er hægt að vera það vondur eða illur, að þú verður góður? Segjum sem svo að þú sért einhver sem eyðileggur alltaf fyrir öllum sem gengur best. Ef vondu köllunum fer að ganga betur en þeim góðu, og þú skemmir fyrir þeim vondu, er það þá gott vont? Alveg eins, er þá hægt að vera það góður og meina það vel að það verður illt? Svona eins og að passa það vel upp á manneskju að hún skrælnar upp andlega og líkamlega? Og ef þetta er hægt, er ég þá núna búinn að skemma gott---vont línuna okkar? Gerir það mig vondan eða góðan?  Og svo, er hægt að spilla þeim spilltu? Ef ég fengi mann sem rænir aurum löglega frá öreigum eða heimilislausum til að skila þessum illa fengna auð aftur af frjálsum vilja, væri ég þá búinn að spilla honum? Þannig að þegar lög eru sett til að koma í veg fyrir eða auka áhættu á spillingu, eru þau ekki í raun að spilla? Ef maður kemur einhverri góðri hugsun fyrir í illum manni, er það spilling? Fjúff Tvö quote til að enda. Fyrra sá ég hjá bróður mínum og fannst það bara allt of gott: "Quaintest thoughts, queerest fancies, come to life and fade away. What care I how the day advances, I am drinking ale today." - Edgar Allan Poe Seinna las ég úr einhverri spekibók sem ég man ekki alveg hver var né heldur hver sagði það. Mjög lærdómsríkt, engu að síður: "Through life, one should not search for oneself. One should create oneself" Ný saga! Woot! Setti hana í Sögur 2 -Gústavo
P.S: Samkvæmt kynlífsstjörnuspeki er mottó karlkynss ljóns: Ég er.
»
28.04.2008 03:50:08 / Gustavo
Ég verð eiginlega bara að setja þetta hérna, sérstaklega í ljósi þess sem er búið að ganga á undanfarnar vikur
"If life gives us rocks, it’s our choice whether to build a bridge or a wall." – Unknown
"All life is an experiment. The more experiments you make the better." - Ralph Waldo Emerson "There are two means of refuge from the miseries of life: music and cats." - Albert Schweitzer
"There are only two tragedies in life: one is not getting what one wants, and the other is getting it." - Oscar Wilde
"The tragedy of life is not that it ends so soon, but that we wait so long to begin it."- W. M. Lewis
"There must be more to life than having everything." - Maurice Sendak
"For the first half of your life, people tell you what you should
do; for the second half, they tell you what you should have done." -
Richard Needham
"If I had my life to live over again, I’d make the same mistakes, only sooner." - Tallulah Bankhead
Þó ég viti ekki hver helmingurinn af þessu fólki er, eru þetta góðar tilvitnanir engu að síður.
"Never frown...even when you're sad 'cause you never know when someone's falling in love with your smile."- Unknown
-Gústavo
»
26.11.2007 18:44:17 / Gustavo
Ekkert langt, ég fékk bara þörf fyrir að skrifa svo ég setti inn nýja sögu. Go read it! NAO! Hún er neðst, heitir Öryggi. Þó mér finnist endalaust furðulegt að gera þetta þá er þetta eitthvað svona aaaahhh.... eins og góð klósettferð. Summary síðan síðast? Læra, leika sér, Inga, bjór, drekka, partý, káf, spila, sofa. Núna? Ritgerð. Segjið mér hvað ykkur finnst um þessa blessuðu sögu mína, mér finnst gaman að heyra það, bæði gott og vont. -Gústavo
»
23.09.2007 14:37:41 / Gustavo
Mig langaði alveg ofsalega að segja eitthvað skemmtilegt hérna en ég held ég sleppi því. Tekst ekki að koma orðum að því og Sókrates sagði að ef maður neyðir orð að því sem maður kemur ekki frá sér þá verður manni illt í sálinni. Ég fýla heimspeki í botn, þó að ég sé soldið latur við að lesa heima Það kemur samt allt, ég rumpa mér hægt og rólega í gegnum textana því ég vil alls ekki flosna upp úr þessu námi. Síðustu helgi var semsagt djammað hjá mér. Ég fór á bjórkvöld á föstudeginum og þar var drukkið fullt fullt af bjór! Og skot og blöndur og annað sem gæti fallið undir drykki á bjórkvöld. Flestir heimspekingarnir voru orðnir vel skemmtilegir og þó að ég muni ekkert um hvað var rætt, þá var eitthvað mjög heimspekilegt rætt Þarna inn komu líka Bergþóra, Auður og Bjarni og eitthvað rétt eftir eitt var Auður orðin eitthvað þreytt greyið þannig að við ráfuðum upp á Hlemm að ná okkur í far. Dagurinn eftir var.... hræðilegur. Ég hef ekki orðið svona þunnur síðan á Portúgal. Vaknaði um 11 og hrundi framúr en ég gat bara ekki verið til þannig að ég lagðist aftur upp í rúm og fór að sofa afþví Inga nennti ekki að hlusta á mig væla. Svo var ég kominn af stað aftur um 3 í venjulegri ógeðisþynnku og gerði allt sem ég gat til að vera hress því Finntroll voru að spila um kvöldið. Og guð minn góður hvað það var gaman. Þó ég hafi ætlað að vera rólegur og hlusta bara á þá missti ég mig gersamlega eins mikið og heilsa mín leyfði því þetta voru bara GEÐVEIKIR tónleikar. Ég og Bjarni ætlum að fara að stunda þetta af einhverri alvöru, enda síðustu tónleikar sem ég fór á Rammstein back in the day, árið 2002 eða eitthvað Svo leið bara vikan með engu merkilegu... spilaði langþráðann Warhammerleik. Fyrir ykkur efasemdarfólkið, fuck you. Þetta er svo óheyrilega skemmtilegt að ég veit varla hvað ég heiti! Eða eitthvað. Svo fór ég í bíó í gærkveldi með Ingu, Ingu og Önnu á Chuck and Larry. Hún var löngu komin á torrent en maður verður bara að fara að sjá Jessicu Biel á nærfötunum á stóru tjaldi. Man, oh man.  Erm... ég hafði hugsað mér að pæla smá en ég nenni því ekki núna, geri það kannski í vikunni þegar ég er að reyna að læra. Þangað til, do stuff. I dont care. -Gústavo Orð dagsins: Brilljant. Ég veit ekkert hvaðan ég fékk þetta orð en ég segi það allt of mikið nú orðið! Urg. Ætti frekar að segja glimrandi eða geðveikt, en nei. Ég er farinn að hljóma eins og Vala Matt stundum >.< "Hommi!" - Nýja alltorðið hennar Ingu Spilarinn : Snæfinnur Hórkall - Sverrir Stormsker
»
13.09.2007 23:10:48 / Gustavo
Ég hef oft sest hérna niður með það í huga að blogga, en ég stranda alltaf á byrjuninni. Hvernig byrjar maður að blogga? Ég meina, ég veit hvað ég vil tala um en ef ég stekk í það beint án þess að koma með smá intro eitthvað þá finnst mér ég bara vera svo mikil gelgja! Ahmahgawd skoh.... gengur ekki beint. Skakkt kannski. Eins og Inga kannski veit þá er ég æfður í list fimmaurabrandaranna og oftar en ekki talar hún um að henni sé illt í blóðinu og vont í tána og eitthvað meira bull þegar mér dettur svona lítil snilld í hug. Hvar væri ég ef ég mætti ekki grínast? Ég væri sko í ræsinu! Thats right! Allavega. Ég er semsagt kominn á fullt í skólanum og ég hef sjaldan skemmt mér eins vel. Bara eiginlega aldrei. Vissi ekki að það gæti verið gaman í skóla! Hnuss. Svo er heimspeki að nálgast það hratt að verða hobbý hjá mér og eins og ég hafi ekki nóg af svoleiðis rugli! Helv... ég man tímann þegar ég kom heim úr skólanum og bara... leiddist! Það gerist aldrei lengur eiginlega... i've never been so busy. Ég vil eiginlega ekki telja þau upp vegna hættu á að ímynd mín sem eitursvalur töffari gæti skemmst. En meðal annars þá er það félagsskapur og drykkja, eins og hjá öllum öðrum töff gaurum. Ég er svo svalur að ég þarf að finna upp eldpinna svo ég frjósi ekki. Hahahah! Take that Inga! Einnig er kannski verðugt að minnast á að ég er að vinna með skóla! HAH! Dulleur ég. Þriðjudaga og fimmtudaga. Gief moneys plx! En já... Skotland. Ég fór þangað semsagt með Ingu 9. ágúst. Fyrsta skiptið sem ég fer svona til útlanda. Hitt var bara drykkjuferð til Portúgal og svo til Danmerkur þegar ég var lítill, sem ég var einusinni. Já, svo þetta var mega gaman, það var international festival í gangi þegar við vorum þarna þannig að það var allt stappað af túristum. Við fórum reyndar ekki á neinar sýningar en við versluðum eins og madmen og fórum í dýragarð! Gott að taka svona afslappsferð við og við. Eftir að ég kom svo heim tók ég sumarfrí í fyrsta skipti, sem var bara awesome. Hef alltaf verið að vinna um sumur þannig að ég hef aldrei upplifað það. Mæli með því. Nú er ég farinn. Eitthvað af þessum hobbýum mínum bíður mín. Það er svo bjórkvöld hjá Soffíu, félagi heimspekinema, annað kvöld þannig að ég býst við því að vera á djamminu á morgun. Svo eru Finntroll að spila á Grandrock á laugardag, þannig að ég djamma þá líka! Wooh! Sumarfríið mitt er greinilega búið  Hastalavistababymmmyes! -Gústavo Orð dagsins: Opinrassi! Bróðir minn fann þetta í orðabókinni góðu. Þýðir semsagt maður sem lokar aldrei hurðum á eftir sér. Taki hver það til sín sem á það  "Shake for me girl. I wanna be your backdoor man" - Led Zeppelin, Whole lotta love Spilarinn : Finntroll - Jaktens Tid
»
08.09.2007 19:58:28 / Gustavo
Ég er ekki hættur. Ég hef reyndar ekki tíma núna til að fara út í the life and stuff, en í stuttu máli var geðveikt gaman með Ingu útí Skotlandi, ýkt fjör sko. Það var erfitt en gaman að meikaða fram að skóla en það tókst og svo finnst mér skólinn yndislegur. Og bara ekkert meira með það að segja. Ég vil sameina alla flokkana sem ég segi venjulega í einn, nefnilega einn þann besta texta sem hefur verið gerður. Ég mun blogga fljótt aftur en ég vildi bara halda þessu flæðandi svona. Þangað til næst, þessi texti er snilld  BLOODHOUND GANG "I Hope You Die"
...You must die I alone am best! I hope ya flip some guy the bird, He cuts you off and you're forced to swerve, In front of the Beatles' tour bus, A Bookmobile and a Mack truck, Hauling hazardous biological waste, The light turns red you have no brakes, And "Hard Copy" gets it all on tape, So you can see the look on your face, ...Die Die Die Die Die Die Die!, ...Die Die Die Die Die Die Die!, I hope your Pinto begins to spin, Takes out a disabled Vietnam Veteran, Mows down a Nobel Peace Prize Winner, And maybe some orphans having Christmas dinner, Perhaps even the British Royal Family, And the Rabbi that's clutching the bottle-fed puppy, And we can't forget the newlyweds, And those Jerry's Kids are as good as dead, I hope this helps to emphasize, I hope this helps to clarify, I hope you die, I hope your cellmate thinks he's God, But C.N.N. refer to him as "Bowling Ball Bag Bob", Serving time again for abuse of a corpse, Only this time the victim's a Clydesdale horse, While he masturbates to photos of livestock, He does the "Silence of the Lambs" dance to Christian Rock, Eats feces and quotes from "Deliverance", And fights with his imaginary playmate Vince, ...Die Die Die Die Die Die Die!, ...Die Die Die Die Die Die Die!, I hope he grins like Jack Nicholson, And forces you to play a game called Balls On Chin, And whatever happens next is all a blur, But you remember "fist" can be a verb, And when you finally regain consciousness, You're bound and gagged in a wedding dress, And the prison guard looks the other way, 'Cause he's the guy ya flipped the bird the other day, I hope this helps to emphasize, I hope this helps to clarify, I hope you die, ...I hope you die!. -Gústavo
»
18.06.2007 17:33:12 / Gustavo
Já! Ég
er í góðu skapi í dag og mig langar að blogga. Og þar sem ég
geri alltaf það sem mig langar þá ætla ég bara að gera það
sem mig langar! Hananú!!
Það er svosem
ekki mikið búið að gerast samt. Ég kúrði bara með Ingu á lau því
hún kom í bæinn og hékk bara í tölvunni í gær. Helgina þar á undan
gerði ég ekkert, þannig að ég er núna kominn í einhverskonar
gerifrí. Reyndar er Inga í fríi í þessari viku og þá geri ég
örugglega fullt, en það er líka bara hollt að eyða
pening.
Reyndar er ég
ekki lengur übermensch í vinnunni. Biggi karlinn er kominn aftur
frá Thai og settist því í hásætið á ný og ég græt það ekki neitt.
Ég er ennþá stærri en þið öll þó að ég sé ekki lengur með þeim
æðstu í keðju skipanna! Svo uppgötvaði ég það skemmtilega hobbí að
mála og vá hvað það er gaman. Ég reyndar er alltaf í tölvunni að
horfa á drasl eða tala við fólk eða spila tölvuleiki en það er
gaman að grípa í það þegar maður nennir. Oh yes. Svo er ég byrjaður
að hita mig upp í lestri fyrir háskólann. Búinn að lesa tvær bækur
á mánuði og stefni í að klára þriðju! Fyrst ég er að fara í
heimspeki þá er eins gott að geta rumpað einni eða tvemur bókum af
á no time. Ég kem þessu öllu inn í daginn og ég er hissa á því að
ég sé alltaf þreyttur...
Það stefnir
svo í mega partý á laugardag. Óli hið bleika beikon sem eitt sinn
heiðraði okkur með bloggum á þessari síðu (eða kannski með
óbloggum? óbloggförum? hmmm... interresting..) ætlar að halda uppá
21. árið með nokkrum félögum og ég held bara að ég ætli að hrynja í
það. Langt síðan síðast og nú þegar ég get sofið í sófum á amk
tvemur stöðum í 101 þá er það juicy sko. Brósi flutti í flotta íbúð
þarna einhversstaðar og bræður eru víst bræðrum verstir en svo
skuldar Dilla mér svefnpláss því hún lét mig vita svo vel að hún
væri að fara í frí. Það gerði mig geðveikann í mitt eigið frí, sem
ég fæ í ágúst! (haha very funny..) Ég og Inga (finnst ykkur ekki
Gústi&Inga flottara en Inga&Gústi? I am the man you know
) ætlum til Skotlands eftir versló og leika okkur eitthvað
og ég hlakka svo mikið til að ég gæti sprungið í buxurnar mínar.
Mmmm... warm...
Allavega. Ég
vil ekki blogga of mikið til að eiga eitthvað eftir fyrir næsta
skipti. Og ég er búinn að setja inn aðra sögu, heitir Paradís. Mér
finnst ég enn vera smá silly að setja þetta hingað en ég ætla samt
að gera það. Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst. Þangað til
einhverntíma, Toodles!
Orð bloggsins:
Sköp. Sko, mér finnst sköp afar áhugavert orð. Í fyrsta lagi, þá
getur það verið fleirtala af skap eða einfaldlega verið eintalan
sköp. Sköp eru líka skemmtilegur staður og ef manni tekst að vera í
góðu skapi og silly skapi, þá er maður í sköpum, sem er afar
hentugur staður til að vera á, allavega fyrir straight stráka og
lesbíur. Og með það í huga, hverslags sköp eru ósköp eiginlega? Er
þá sköpun mjög tvísýnt orð? Og eru þá skapsveiflur ekki rosalega
hættulegar? o0
-Gústavo
"Æm a meil
lady!" - Margrét við útlending. Hann hélt að hún væri maður, ekki
póststarfsmaður. Yes.
Spilarinn :
Iron Maiden - Aces High
»
03.06.2007 13:50:58 / Gustavo
Ég er
gersamlega tómur á blogg. Ég kláraði það allt með síðasta og
þarsíðasta, og það tekur langann tíma að koma aftur! En ég er
viss um að það gerist, ég nenni því bara ekki núna. Fannst ég
bara verða að skrifa eitthvað til að allir haldi áfram að
koma inn á þessa síðu 
Það er ekkert
búið að gerast síðan síðast. Inga farin á Þingvelli, ég orðin
yfirmaður og eitt eða tvö djömm. Mér finnst það
ekkert! 
Ég er allavega
ennþá á lífi og ég á eftir að blogga meira seinna, en núna nenni ég
því ekki. Ég er farinn að spila tölvuleiki. Mmmmm...
tölvuleikir...
-Gústavo
Vegna leti nenni ég ekki að skrifa það sem ég geri venjulega.
Tough noogies
»
30.04.2007 22:26:17 / Gustavo
Þetta
var fjör. Síðasta vika var fjör. Það er alveg á hreinu. Inga
kom heim síðustu helgi og við vorum límd saman alla vikuna,
enda var hún að fara uppá Þingvelli í dag. Nú mun hún eiga
heima uppá sveitabæ fram í september! Sveiattann... þeir sem
vilja styrkja mig með bensíni er bennt á bensíntankinn á
Fred. Aðrir mega gefa mér nammi eða bara pening. Það er nú
heldur ekki langt í að yfirmaðurinn fari til Tælands með
sinni í háskólaferð og þá verð ég að leysa af! Sem þýðir
stress og harsperrur! Wooh! Svo kemur bara sumarið og þá verð
ég bleikur eins og venjulega. Og ég get sko sagt ykkur það að
ég hlakka bara til!
Ég fór nú samt
í óvissuferð með vinnunni á laugardaginn 28.! Og vá hvað það var
gaman. Ég var kominn uppí póstmiðstöð stundvíslega klukkan hálf
tólf! Klukkan þeirra var bara vitlaus. Við átum og hlömmuðum okkur
uppí rútu og rassinn á mér var ekki fyrr búinn að mótast að sætinu
fyrr en við fengum fyrsta bjór! Klukkan 2! Það var awesome
Allavega, við tókum upp lag hjá Magga Kjartans, söguna af Nínu og
Geira, og ég get ekki hlustað á það lengur. Talandi um að fá ógeð.
Þaðan fórum við í M16, laisortag utandyra, og mér tókst að snúa mig
líka svona hressilega. En það þarf meira en svoleiðis til að ég
hætti og við brunuðum þaðan upp í skíðaskála og átum. Það var einn
ókostur við þennann stað. Klósettið var niður stiga og ég þurfti að
haltra hann oft til að fara og pissa bjór Svo brummuðum við
í bæinn og sungum allan tíman. Ég var kominn heim um 5 og gerði
ekkert af mér! Takk Bjaggi fyrir skutlið, ég hefði ekki komst heim
fyrir föstudag ef ég hefði haltrað!
Ég var ekki
þunnur í gær en ég hrundi samt útúr rúminu útaf löppinni. Ég hló
samt að því Svo hefur ekkert meira merkilegt gerst svosem, nema
náttlega að Inga er farinn uppeftir. Ég mun reyna að vera duglegur
að fara þangað og auglýsi eftir fólki til að joina mig. Ég verð
ekkert reiður ef ég fæ engann, ég get rúntað þetta einn og sungið.
Mmmm... ég syng illa. Heheh
Orð bloggsins:
Rifa. Einhverjum sem skrifuðu líffræðibækur fyrir grunnskólakrakka
fannst það góð hugmynd að segja að konur hefðu rifu á meðan karlar
hefðu lim. Þetta býður klárlega upp á alls kyns dónalegar
uppástungur, svo sem má ég stinga nefinu inn um rifuna hjá þér,
þarftu ekki smá spassl í þessa rifu eða troddu þessu í rifuna á
þér! Ég er ógeðslegur pervert og það er ein af ástæðunum sem þið
elskið mig! 
P.S. Ég var að gera
soldið asnalegt. Tjékkið neðst til vinstri og endilega látið mig
vita hvað ykkur finnst.
-Gústavo
"Ég hef aldrei
fengið mök frá Gústa!" - Inga
Spilarinn : The
Perfect Drug - NIN
»
20.04.2007 21:46:39 / Gustavo
Ég er
búinn að komast að því að það er bæði hollt og gott að vera
smá geðveikur. Að geta látið sér detta í hug þvílíkt og annað
eins buddl. Ég er góður í því, enda er ég rauðhærður. Það
hefur einmitt gert smá misrétti í vinnunni, staðreyndin að ég
er rauðhærður. Það kemur fyrir að maður heyrir orðin ginger
eða rauðhaus og það virðist vera sem að þau heiti eigi að
setja mig á lægri stall en aðra. Too bad for them að ég er
fokking stór, þau þurfa alltaf að líta upp til mín! HAHAH! I
rule! 
Ég skal nú
samt bara segja ykkur það að rauðhærðir eru næsta skref í þróun
mannsins. Sýnir sig í því að rauðhærðir eru fáir en fer fjölgandi
og rautt hár er vísindalega rannsakað sem stökkbreyting.
Líffræðikennarinn minn í MR tók mig meiraðsegja sem dæmi þegar hún
var að kenna stökkbreytingar! Til dæmis höfum við færri
sársaukastöðvar í líkamanum en þær virka betur! Við finnum meiri
ofsa í því sem við einbeitum okkur að og erum því rosaleg þegar
kemur að öllu svona tilfinningarugli. Vonið að þið rekist aldrei á
reiðan rauðhaus í húsasundi, it's gona tear you a new one! All
around... þá eru rauðhausar bara awesome. Það er vísindalega
rannsakað og enginn getur sagt neitt við
svoleiðis.
In other news
from Gustavoland, þá er Inga búin að vera úti í sviss síðan á
laugardag! Þannig að það er búið að vera ágætlega einmanalegt
hérna, svona þannig séð (naughty? ). Hún kemur nú samt aftur á
morgun þannig að þetta var ekkert svo hræðilegt. En svo verður hún
bara í viku áður en hún flytur út í sveit! Össöss. Allir þurfa að
vera duglegir að fara á þingvelli í sumar og kaupa rjómaísinn
hennar (naughty!). Oooh! She bring Gustavo M&M! There shall be
feasting of candy and toejuice.... mmmm.
Talandi um
svoleiðis! Ég er búinn að fara á fullt af fylleríum síðan í mars.
Eftir reunionið þá er ég búinn að vera miklu duglegri við að djamma
og mun þolnari núna en ég var! Núna síðast fór ég á staffadjamm sem
var haldið heima hjá meistara Bigga. Það var awesome! Ég er ekki að
grínast, þetta var überdjamm. Strax eftir vinnu til Bigga. Klukkan
orðin 11. Allir mættir á svæðið og við tökum til við að djúsa!
Eftir einhvern tíma ákveðum við fjögur að fara nirrí bæ. Klukkan
orðin 3 (eða 4, hver í andsk man það ) Við rennum niðrá
Celtic og fáum okkur bjór! Oooooooooog svo eitthvað! Ég allavega
endaði á því að fylgja Dillu greyinu heim afþví hún var svo völt
greyið! (örugglega eitthvað að skónum *nods*) Klukkan orðin 5! Ég
sit heima hjá henni og spjalla við fólk á meðan ég safna hugrekki
til að labba heim því ég týmdi ekki taxa. Og svo labba ég út og út
á götu þá flautar á mig Siggi! Annar starfsfélagi. Og hann skutlar
mér heim! Geðveeeeeikt. Ég held að ég hafi aldrei verið jafn
heppinn. Svo kom ég heim og drapst 
Jammjamm. A
day in the life. Ég ætla mér samt að reyna að gera eitthvað nýtt á
hverjum degi í sumar! Eða svona næstum. Maður gerir náttlega alltaf
eitthvað nýtt. Þú borðar til dæmis aldrei sama matinn. Allt það.
Hef ég einhverntíma sagt að ég er að fara í heimspeki?

Ég er farinn að gera
eitthvað viturlegra en að hanga í tölvunni. Drekka bjór,
perhaps?
Orð bloggsins:
Bulgeosaur. Jább, ég held að við vitum öll hvað ég er að tala um.
Þegar orðin gigantic eða awesome virka ekki yfir bonera, þá notum
við bulgeosaur. Bulgeosaurus Rex!
-Gústavo
"Graðir
breiðhyltingar!" - Margrét, um sig, mig og Jón.
Spilarinn :
Just Like You Imagined - Nine Inch
Nails
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 35404
Dagsetning
23. febrúar 2012
|